|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
Matthildur
- 4 mánuðir síðan
Svona gerði eru ekki hugsuð fyrir skussana heldur einmitt fyrir þá sem að sýna öðrum vegfarendum virðingu og vilja samt leyfa hundinum sínum þann munað (eins og staðan er í dag) að fá að hlaupa lausum. Það á ekki að þurfa sér bílferð til þess að geta sleppt hundinum sínum lausum í smá stund þegar nóg er af góðu svæði í boði. Það er ekki verið að troða neinum um tær með því að útbýta smá svæði í hverju hverfi fyrir hundaeigendur. |
|
Dóra Ásgeirsdóttir
- 4 mánuðir síðan
Hundahald á ekki að vera háð því að eiga bifreið. Þessvegna þarf að koma útivistasvæðum eða hundagerðum fyrir á ákveðnum stöðum í hverfum innan bæjarmarka.
|
|
|
|
|
Matthildur
- 4 mánuðir síðan
Ég styð það að bæta aðstöðu fyrir gangandi og hjólandi en hins vegar er ég ósammála að það verði að koma niður á hestamönnum sem nota þetta svæði mikið og hafa lengi. Það er alveg hægt að gera ráð fyrir öllum á þessu svæði, t.d. með því að leggja góðan göngustíg sem er ekki alveg upp við reiðstíginn, svipað og er nú þegar þeim megin sem suðurlandsvegur liggur. Auk þess er rosalega stórt og víðfermt net af göngustígum í nágrenni Rauðavatns sem eru eingöngu fyrir gangandi vegfarendur. Ef fólk telur sig verða fyrir truflun af því að sjá hestamenn á ferð er alveg kjörið að skoða þá stíga enda að mörgu leiti mun skemmtilegri yfirferðar heldur en stígurinn umhverfis vatnið sjálft. |
|
Einar Ólafsson
- 4 mánuðir síðan
Það er allt hægt að bæta, en í þessu tilfelli þarf það ekki að koma niður á hestamönnum, sem hafa nýtt þetta svæði í langan tíma. Tek undir með Matthildi. |
|
|
|
|
Einar Ólafsson
- 4 mánuðir síðan
Afhverju ætti að banna hestaumferð um rauðavatn? |
|
Einar Ólafsson
- 4 mánuðir síðan
Ohh, ég er að misskilja hvenig þetta er tengt saman, afsakið. Held þessi athugasemd eigi ekki heima hér(sú sem ég ritaði hér að ofan) |
|
|
|
|
Kort
- 4 mánuðir síðan
Athyglisvert var að sjá hvernig Stokkhólmsbúar leysa vandan sem getur skapast þegar göngu- og hjólastígar liggja samsíða og eina sem skilur þá að er hvít lína, lausn Svía var einfaldlega að setja hraðamörk, hámarkshraðinn var settur í 30km/klst. |
|
|
|
|
Baldur Örn Óskarsson
- 4 mánuðir síðan
Virðum hámarkshraða ALLSTAÐAR! |
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
Konrad Gylfason
- 4 mánuðir síðan
Hér erum við að hugsa um minnstu börnin, t.d 2jaára og yngri. Lítið lokað svæði, með leiktækjum fyrir litlu krílin. |
|
Konrad Gylfason
- 4 mánuðir síðan
Það er ekkert lokað svæði fyrir 2ára og yngri í Norðlingaholti, þess vegna vil ég og Íbúasamtök Norðlingaholts nota tækifærið og nota þetta svæði undir litlu ungana okkar. Svæðið við Norðlingaskóla er fyrir eldri börn og þar verður þvílíkt flott svæði fyrir eldri börnin. Það svæði mun klárast haustið 2012. Það vantar alveg leiksvæði, öruggt svæði, lokað, fyrir ungabörnin. Dagmæður og "einhverjir foreldrar" eins og þú nefnir það, eru ansi margir í Norðlingaholti, ekki gleyma þessum stóra hóp. Alls ekki bara fyrir dagmæður, heldur öll börn sem eru í yngri kantinum. Þegar við segjum lokuðum leikvelli, þá er hann samt sem áður OPINN fyrir öllum. Lokaður er í þessari merkingu, rammaður af með girðingu eða þess háttar svo börnin okkar hlaupi ekki frá með auðveldum hætti, í veg fyrir bíla og þess háttar. Opinn fyrir alla, en samt afmarkaður fyrir öryggi barna okkar. Skýrir þetta eitthvað? ÁFRAM NORÐLINGAHOLT :-) |
|
|
|



Ég bý í Norlingaholti og mig langar að opna umræðu um gróðursetningu grenitrjáa. Þannig er að við búum í Hólmvaðinu, götunni sem liggur að rauðhólum og við fáum ekkert skjól fyrir vindi. Ég ásamt fleiri í húsinu okkar, erum að lenda í því að ruslatunnur og fleira fjúka á bílana okkar í mestu vindhviðunum með tilheyrandi tjóni sem við berum sjálf fjárhagsskaða af. Legg ég því til að gróðursett verði grenitrjám með jöfnu millibili ofan á hólana sem settir hafa verið meðfram öllu Hólmvaðinu.